banner_4
Panta minningarkort
Fréttablað Neistans

MailChimp Signup

Póstlisti Neistinn

 

Error in function redimToSize: The image could not be resized because the size given is larger than the original image.

Error in function saveImage: There is no processed image to save.

Fjáröflunarleiðir félagsins

Neistinn er líknarfélag og fjármagnar starfsemi sína með sölu á jólakortum, minningarkortum, dagbókum, geisladiskum, merkjum og fleiru. Einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir styrkja einnig Neistann með beinum eða óbeinum hætti.

Mörg fyrirtæki styrkja starf Neistans með öðrum hætti en beinum fjárframlögum, til dæmis gefur Breiðholtsbakarí félaginu kökur og bakkelsi (gómsætt og í miklu magni) fyrir fundi og samkomur á vegum Neistans.

Stórt eða smátt, allt skiptir máli og allt kemur að góðum notum. Stuðningur þinn gefur félaginu tækifæri til þess að aðstoða hjartveik börn, foreldra þeirra og aðstandendur.  Útgáfa á dagatölum og jólakortum eru meðal helstu fjáröflunarleiða félagsins.

Dagatal Neistans árið 2011

Dagatal Neistans 2011Annað árið í röð gefum við út dagatal með myndum af 13 hjartveikum börnum á aldrinum 2-18 ára.

 

Þau eru til sölu á skrifstofu samtakanna að Síðumúla 6, s: 552-5744 eða í gsm 899-1823 og í versluninni Engey Smáralind.  Dagatölin verða líka seld á Akureyri og Ísafirði.

 

Árni Rúnarsson tók myndirnar og færum við honum hjartans þakkir fyrir en hann gaf alla sína vinnu við dagatalið.

 

Dagatalið kostar 1500 kr. Ágóðinn rennur óskertur til handa hjartveikum börnum og fjölskyldum þeirra.  Hafðu stórt hjarta fyrir lítil.

Árlega fæðast um 70 börn með hjartagalla, eða u.þ.b. 1,7% allra lifandi fæddra barna hér á landi. Af þessum börnum þarf helmingur þeirra að gangast undir aðgerð og sum þeirra oftar en einu sinni. Þriðjungur þessara aðgerða er framkvæmdur hérlendis.

Flestir gallar eru meðhöndlaðir með skurðaðgerð,hjartaþræðingu eða lyfjagjöf..

Þökk sé framförum í læknisfræði er nú hægt að meðhöndla fjölda hjartagalla sem ekki var hægt að meðhöndla fyrir fáum árum. Hjartaaðgerðir og hjartaþræðingar eru nú framkvæmdar á yngri börnum en áður og í raun er algengt nú að slíkar aðgerðir séu gerðar á nýburum, en það hefur gefið þessum börnum mun betri batahorfur en áður.

Vilt þú styrkja Neistann með fjárframlögum?

Reikningsnúmer:  101-26-4995 og 101-26-777147
Kennitala: 490695-2309