|
|
|
|
Hjartaunglingarnir, 14 - 18 ára, hittast ósjaldan - að sjálfsögðu helst sem fjærst foreldrunum. Þeir fara í leikhús og bíóferðir o.fl. og hafa mörg hver kynnst vel í gegnum unglingastarf Neistans.
Einn af hápunktum unglingastarfsins eru Norrænu sumarbúðirnar, þar sem hjartaunglingar frá öllum Norðurlöndunum hittast og dvelja saman í viku að sumri til. Hist er til skiptis í löndunum fimm.
Umsjónarmenn unglingahópsins eru Guðrún Bergmann og Jóhannes Geir.
Þeir sem áhuga hafa á að komast í samband við unglingastarfið eða hafa áhuga á sumarbúðunum, skulu hafa samband við Guðrúnu Bergmann (552 5744,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
).
Smellið hér til að fara á Fésbókarsíðu unglingahóps Neistans.
Smellið hér til að fá helstu fréttir af unglingastarfinu.
|
|