banner_4
Panta minningarkort
Fréttablað Neistans

MailChimp Signup

Póstlisti Neistinn

 
Hjartagáttin

 

18_0Hjartagáttin er fræðsluvefur, vefgátt, sem allir aðstandendur hjartabarna ættu að kynna sér. 

 

Á Hjartagáttinni er hafsjór fróðleiks.  Þar er t.d. fjallað um hvernig bregðast skuli við því þegar hjartagalli greinist í barni manns.  Þá er rætt um það líf sem hjartabörn og fjölskyldur þeirra lifa og góð ráð gefin.  Sérstök áhersla er lögð á að leiðbeina þeim sem fara með börn sín í hjartaaðgerðir.

 

Meginmarkmið Hjartagáttarinnar eru:

    • Að upplýsa á sem bestan hátt þá sem standa að börnum sem fæðast með hjartagalla.
    • Að undirbúa aðstandendur barna sem þurfa að fara í hjartaaðgerð.
    • Að styðja fylgdarmenn barna sem eru með þeim í aðgerð erlendis.
    • Að fræða aðstandendur hjartabarna um líf og umönnun þeirra.

       

Þeir sem standa að Hjartagáttinni eiga allir hjartabörn sjálfir, sem farið hafa í aðgerð til útlanda, eina eða fleiri. Öll lifa þessi börn heilbrigðu og góðu lífi í dag.  Þeir þekkja óþægindin sem fylgja því að þurfa að fylgja barni sínu í hjartaaðgerð (og gleðina sem fylgir á eftir). Þess vegna settu þeir upp Hjartagáttina, til að auka þekkingu á lífi hjartabarna, draga úr óvissunni og óörygginu sem fylgir aðgerðunum og lífinu með hjartagalla og létta þannig álagið á aðstandendum.

 

Á Hjartagáttinni er safnað saman öllum þeim upplýsingum sem talið er að komi að gagni við að gera sig kláran og fara í gegnum aðgerðarferlið og einnig að lifa lífinu í framhaldinu.

 

Smellið hér til að fara inn á Hjartagáttina.