|
|
|
|
Árlega fæðast á Íslandi um 70 börn með hjartagalla, eða u.þ.b. 1,7% allra lifandi fæddra barna hér á landi. Um það bil helmingur þeirra þarf að gangast undir aðgerð og sum þeirra oftar einu einu sinni.
Til skamms tíma voru allar hjartaskurðaðgerðir á íslenskum börnum framkvæmdar erlendis. Fyrst í Kaupmannahöfn og síðan á Englandi en á síðastliðnum árum hafa börn verið send í aðgerð til Boston. Nýlega var farið að senda hjartabörn í aðgerðir til Lundar í Svíþjóð og fara flest nú þangað, þótt enn fari nokkur börn til Boston.
Fyrsta hjartaskurðaðgerðin var framkvæmd á Íslandi árið 1990 en upp úr 1996 var um helmingur allra aðgerða framkvæmdur hérlendis. Til ársloka 2000 voru framkvæmdar 79 hjartaskurðaðgerðir hér á íslandi, lokaðar aðgerðir voru 46 (þar sem hjarta og lungnavél er ekki notuð) og opnar aðgerðir voru 33 (þar sem hjarta og lungnavél er notuð). Helstu hjartagallar sem gert er að á Íslandi eru
Op á milli gátta (atrial septal defect) Ósæðarþrengsli (coarctation aortae) Framhjáveita (shunt aðgerð) Opin fósturæð (patent foramen ovale) Æðahringur (vascular ring) Op á milli slegla (ventricular septal defect)
Nánari umfjöllun um ofangreinda hjartagalla - og fleiri til-, einkenni þeirra, meðferð og fleira má sjá hér á Hjartagáttarvefnum:
|
|