Skip to main content

Um félagið

Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, var stofnað þann 9. maí 1995

Félagið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á velferð hjartveikra barna og fullorðinna með hjartagalla. Í dag eru um 500 fjölskyldur í félaginu.

Neistinn styður fjölskyldur

Neistinn styður fjölskyldur barna og ungmenna með hjartagalla á margvíslegan hátt – félagslega, efnahagslega og tilfinningalega. Neistinn miðlar fræðslu hvers kyns sem lýtur að hjartagöllum og meðferð þeirra t.d. með útgáfu fréttablaðs og upplýsingavef sínum.

Félagið heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings og unglingastarfið þykir einkar líflegt. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði hjartveikra barna, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega.

Félagsfundir

Félagsfundir eru haldnir yfir vetrarmánuðina, stundum fáum við fyrirlesara á fundina til að ræða málefni hjartveikra barna.  Einnig finnst félagsmönnum gott að koma saman og ræða málefni barnanna og miðla af reynslu sinni til annarra foreldra.

Það getur reynst ómetanlegur stuðningur við þá foreldra sem eiga börn sem nýlega hafa greinst með hjartagalla.  Allir þeir sem áhuga hafa á málefnum hjartveikra barna eru hvattir til að koma á félagsfundi Neistans.

Starf Neistans

Starf Neistans á undanförnum árum hefur verið hjartveikum börnum ómetanlegt.  Þrátt fyrir það er ætíð svigrúm til að gera enn betur og hefur stjórn félagsins það ætíð að leiðarljósi í störfum sínum.  Og hvergi má slá af hefðbundnum uppákomum svo sem sumarferð, jólagleði og skemmtidögum.  Samhliða starfinu þarf að afla félaginu tekna en grundvöllurinn fyrir öllu starfi félagsins er að það hafi styrkan fjárhagslegan grunn.

Þátttaka sjálfboðaliða

Félagið er líknarfélag sem reiðir sig á þátttöku sjálfboðaliða.  Þeim til aðstoðar njótum við einnig krafta og stuðnings starfsmanna Landssamtaka Hjartaheilla og SÍBS.

Það er ljóst að í félagsstarfi sem þessu er árangurinn af starfseminni háður vinnuframlagi þeirra einstaklinga sem hug hafa á þátttöku.  Það getur hins vegar dregið úr eldmóði aðila ef umfang verkefnisins er það mikið og þátttakendur það fáir að verkefnið virðist óyfirstíganlegt.  Það er því mjög mikilvægt að finna leið til þess að gera hvert verkefni viðráðanlegt og í samræmi við þá starfskrafta og þann tíma sem í boði er.

Viltu styrkja félagið?

Þeir sem hafa áhuga á að styrkja Neistann eða taka þátt í starfsemi félagsins er bent á að hægt er að gerast félagi hér á vefnum og/eða fá upplýsingar um leiðir til að styrkja Neistann.