Hjartadagurinn – hjartahlaupið – hjartagangan – sund!
Alþjóðlegi hjartadagurinn verður haldinn hátíðlegur á Kópavogsvelli sunnudaginn, 28. september.
Á Íslandi sameinast Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn og Heilaheill um að halda daginn hátíðlegan.
Félögin hafa haldið upp á daginn með hjartadagshlaupinu um árabil í samvinnu við Kópavogsbæ sem hefur boðið þátttakendum í sund að hlaupi loknu. Þá er það Breiðablik sem sér um framkvæmd hlaupsins en hlaupaleiðin liggur um Kársnesið.
Hjartahlaupið:
Vegalengd – boðið upp á tvær vegalengdir, 5 og 10 km.
Skráning – á www.hlaup.is eða við stúkuna fyrir hlaup (frá kl. 9:00 á hlaupadag)
Hlaupið af stað – kl. 10:00
Verðlaun – já, fyrir efstu sætin … vegleg
Hjartagangan:
Gengið af stað – strax í kjölfar hlaupsins
Gengið hvert – um Kópavogsdal
Leiðsögumaður – garðyrkjustjóri Kópavogsbæjar.
Gengið hvert – um Kópavogsdal
Leiðsögumaður – garðyrkjustjóri Kópavogsbæjar.
Hve langt – klukkustund eða svo
Skráning – nei
Skráning – nei
Sund:
Frítt að loknu hlaupi (eða göngu).