Reykjavíkurmaraþon verður hlaupið 23. ágúst. Búist er við mikilli þátttöku og góðri stemmningu. Að vanda geta vinir Neistans tekið þátt í söfnun fyrir félagið með því að heita á þá hlaupara sem hlaupa til góðs í nafni Neistans. Nú eða þá að hlaupa sjálfir í nafni félagsins og safna áheitum.
Heita á hlaupara – styrkja Neistann
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni og styrkja góðgerðarfélög eins og Neistann. Hægt er að heita á hlaupara fram að miðnætti mánudaginn 25. ágúst en hlaupið fer fram laugardaginn 23. ágúst 2014.
Hlaupara Neistans má sjá með því að smella hér. Auðvelt er að heita á þá á síðunni en hægt er að greiða áheit með kreditkorti, millifærslu eða með því að senda áheitanúmer keppenda sem sms skeyti.
Hlaupa sjálfur til góðs – safna fyrir Neistann
Ef þú vilt sjálf(ur) hlaupa til góðs (t.d. fyrir Neistann) skráir þú þig fyrst í Reykjavíkurmaraþonið á www.marathon.is. Í skráningarferlinu er boðið upp á að skrá sig sem góðgerðarhlaupara fyrir ákveðið góðgerðarfélag. Haka þarf í reitinn “Já, ég vil hlaupa til góðs” og velja góðgerðarfélag í fellilistanum. Nafn þitt birtist á síðunni www.hlaupastyrkur.is og hver sem er getur heitið á þig. Þú getur sett inn myndir á síðunni og eða sagt frá ástæðu þess að þú hleypur fyrir félagið.
Viðurkenningarskjal – Þakkir. Um leið og Neistinn hvetur fólk til að taka þátt í þessu skemmtilega átaki hvetjum við hlaupara að skrá sig og hlaupa fyrir hjartabörn á Íslandi. Þeim sem safna áheitum fyrir Neistann fá sérstakt viðurkenningarskjal í þakklætisskyni frá félaginu. Þeim fjölmörgu sem hlaupið hafa í gegnum árin fyrir Neistann eru færðar hjartans þakkir fyrir þeirra framlag.