Skip to main content
Monthly Archives

september 2017

Höfundar Kransæðabókarinnar afhentu Neistanum 500 þúsund króna styrk

By Fréttir

Höfundar Kransæðabókarinnar hafa veitt Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna, 500 þúsund króna fjárstyrk. Fríða Björk Arnardóttir tók við styrknum 21. september 2017 fyrir hönd Neistans úr höndum prófessoranna Guðmundar Þorgeirssonar, ritstjóra bókarinnar, og Tómasar Guðbjartssonar.

Hugmyndina að styrkveitingunni átti Guðbjörg Ingvarsdóttir gullsmiður og eigandi Aurum en hún ákvað í sumar að gefa kvenhöfundum Kransæðabókarinnar hálsmen með gullhjarta sem hannað var af Siggu Heimis hönnuði. Sem þakklætisvott ákváðu höfundar Kransæðabókarinnar að afhenda Neistanum 500 þúsund króna styrk en Aurum hefur áður stutt veglega við bakið á samtökunum.

Kransæðabókin kom út fyrir tæplega ári síðan og hafa móttökur verið það góðar að prenta varð annað upplag síðastliðinn vetur. Hagnaður af sölu bókarinnar verður nýttur til að styðja við rannsóknir á hjartasjúkdómum og til góðgerðarmála. Kransæðabókin er enn fáanleg í Lyfjaveri við Suðurlandsbraut og Bóksölu stúdenta en einnig er hægt að panta eintak með því að senda tölvupóst á gunnhild@landspitali.is.

Kransæðabókin á Facebook

Alþjóðlegi hjartadagurinn 2017

By Fréttir

Alþjóðlegur hjartadagur er haldinn 29. september ár hvert en það er Alþjóðahjartasambandið (World Heart Federation) sem hvetur aðildarfélög sín um allan heim til að halda upp á Hjartadaginn. Á Íslandi sameinast Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn og Heilaheill um að halda daginn hátíðlegan.

 

Ellefta hjartadagshlaupið fer fram laugardaginn 23. september 2017 kl. 10:00 frá Kópavogsvelli. Hlaupið verður 5 og 10 km að venju. Hægt er að skrá sig í hlaupið hér.

 

Þann 29. september 2017 kl. 17:00 verður hjartagangan – lagt verður af stað frá göngubrúnnum við gömlu rafstöðinni í Elliðaárdal og gengið um Elliðaárdalinn undir forystu Hjartaheilla. Gangan er um 4 km að lengd.

 

UNGLINGAHITTINGUR!

By Fréttir, Unglingastarf
Unglingahópur Neistans ætlar að hittast næst laugardaginn 7 október kl. 12.30 og skella sér í  Speed boat adventure, endilega meldið ykkur á unglingasíðu Neistans eða með því að senda mail á gudrun@hjartaheill.is því við þurfum að vita fjöldan tímanlega.
Skemmtunin er í boði blackbeachtours og Neistans og er fyrir alla hjartveika unglinga á aldrinum 13 ára +, en endilega takið með ykkur smá pening því við munum koma við einhversstaðar og fá okkur saman að borða.
 
Sjáumst hress
kveðja,
Guðrún og Jói

Að vera unglingur með hjartagalla

By Reynslusögur

Ég heiti Anney Birta Jóhannesdóttir og er 15 ára. Þegar ég var þriggja daga gömul kom í ljós að ég var með sjaldgæfan og alvarlegan hjartagalla sem kallast truncus arteriosus. Vikugömul var ég því send í opna hjartaaðgerð til Boston þar sem sett var gervislagæð í hjartað, lokað var á milli hólfa og æð víkkuð.

Ég var mjög veik fyrstu fjögur ár lífs míns og þurfti meðal annars að fara sex sinnum til Boston í aðgerðir, bæði opnar aðgerðir og aðgerðir í gegnum þræðingu. Í dag gengur mér miklu betur en ég á samt mjög líklega eftir að fara í fleiri aðgerðir í framtíðinni. Þar sem ég er með loku sem lekur þarf reglulega að skipta um loku og einnig um gerviæðina.

Ég hef þurft að vera í reglulegu eftirlit allt mitt líf. Í eftirlitinu er fylgst með hjartanu mínu. Ég fer í hjartasónar og það er tekið hjartalínurit og margt fleira. Þegar ég var lítil leið bara vika á milli skoðana en í dag fer ég á þriggja mánaða fresti.

Neistinn hefur hjálpað okkur fjölskyldunni svakalega mikið, sérstaklega þegar ég var lítil og við þurftum sífellt að fara til Boston. Þá fengu mamma og pabbi fjárhagsaðstoð frá styrktarsjóði Neistans og stuðning frá foreldrum í félaginu. Eftir að ég varð unglingur og komst í unglingahóp Neistans hef ég eignast mikið af vinum sem hafa gengið í gegnum svipaða reynslu og ég. Það er gott að fá stuðning frá þeim.

Stundum finnst mér mjög erfitt að vera veik en oftast er ég bara þakklát fyrir að vera ég því annars væri ég ekki búin að kynnast öllu því frábæra fólki sem tengist Neistanum. Ég er líka mjög þakklát fyrir að það sé fólk sem er tilbúið að hjálpa börnum eins og mér fjölskyldum okkar.

Anney Birta