Aðalfundur Neistans verður haldinn fimmtudaginn 17. maí kl. 20:00 í Síðumúla 6. (2. hæð).
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og ritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar félagsins lagðir fram
4. Reikningar Styrktarsjóðs hjartveikra barna lagðir fram
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning skoðunarmanns reikninga
7. Kosning formanns*
8. Kosning stjórnar**
9.Önnur mál
* Núverandi formaður Elín Eiríksdóttir gefur ekki kost á sér. Eitt framboð hefur borist, frá Guðrúnu Bergmann, fyrrum formanni Neistans. Þeir sem hug hafa á að bjóða sig fram til formanns láti vita ekki seinna en 5 dögum fyrir aðalfund á neistinn@neistinn.is.
** Kosið verður í 3 sæti í stjórn til tveggja ára og 1 sæti til eins árs. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til setu í stjórn Neistans, vinsamlegast láti vita ekki seinna en 5 dögum fyrir aðalfund á neistinn@neistinn.is.