Skip to main content

Starfsemi

Neistinn er ágætis vettvangur fyrir hjartabörn og aðstandendur þeirra til að hittast og skemmta sér saman og bera saman bækur sínar o.s.frv.

Félagsfundir

Félagsfundir eru haldnir á veturna þar sem við komum saman og ræðum málefni barnanna og miðlum reynslu sem er ómetanlegt, sérstaklega foreldrum sem eiga börn sem nýlega hafa greinst með hjartagalla. Oft koma fyrirlesarar fundina til að ræða málefni hjartveikra barna. Tilkynningar um alla viðburði Neistans eru birtar á vefnum okkar. Þær eru einnig sendar í tölvupósti og bréfpósti til félagsmanna.

Árlegir viðburðir

Árlegir viðburðir eru nokkrir og er jafnan reynt að hafa aðgang frían og hressingu ef við á og hægt er. Sem dæmi má nefna sumarhátíðina, bingó og jólaballið.

Unglingastarf

Hjartaunglingarnir, 14 – 18 ára, fara stundum saman í leikhús og bíóferðir o.fl. og hafa mörg hver kynnst vel í gegnum unglingastarf Neistans.

Mömmuklúbbur

Mömmukvöldin eru algerlega óformleg – og ekki leiðinleg. Þar er einfaldlega er spjallað um heima og geima, hjartamál eða ekkihjartamál, yfir einhverri hressingu.

Styrktarsjóður Neistans

Styrktarsjóður hjartveikra barna veitir foreldrum hjartveikra barna fjárhagslegan stuðning, t.d. vegna ferða utan með barn í hjartaaðgerð.

Orlofshús

Félagsmönnum Neistans bjóðast afnot af orlofshúsum Umhyggju.  Um er að ræða tvö hús, annað í Vaðlaborgum í Eyjafirði, gegnt Akureyri, hitt í Brekkuskógi.  Bæði eru húsin afar notaleg og vel búin og allur aðbúnaður eins og best verður á kosið.  Þau eru bæði nýleg og í góðu standi.