Bjóðum hann velkominn og fögnum afmæli Neistans
Í tilefni af 18 ára afmæli Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna, verður nýja hjartaómskoðunartækið Hjörtur tekið formlega í notkun miðvikudaginn 8. maí kl. 10:00 á leikstofu Barnaspítala Hringsins, 2. hæð.
Það var árið 2011, í þjóðarátakinu Á allra vörum, sem safnað var fyrir tækinu sem gerir læknum kleift að greina betur og fyrr hjartagalla í fæddum og ófæddum börnum og skapar þannig gjörbreyttar og betri aðstæður fyrir bæði lækna og sjúklinga.

Okkur þætti vænt um að sem flestir létu sjá sig og tækju þátt í þessum merku tímamótum með okkur
– og þiggja um leið tertur að hætti Hilla Hjall í boði Sveinsbakarí.
Stjórn Neistans