Hó Hó Hó. Nú minnum við á JóLABALLIÐ. Allir þurfa að vera klárir sunnudaginn 30. nóvember, kl. 14 – 16 að mæta í safnarðarheimili Grensássóknar.
Jólasveinninn kemur með pokann góða … æ, hvað var aftur í pokanum.
NÝTT NÝTT: Litir og blöð öllum aðgengileg á staðnum!
NÝTT NÝTT: Allir komi með eitthvað gott í gogginn á hlaðborð.
Drykkir og kaffi í boði Neistans.
Dansað verður í kringum jólatréð við undirleik SÍBS sveitarinnar – jújú.
Alltaf allt pakkað á jólaböllum Neistans.
Hlökkum rosalega til að sjá ykkur öll!