Aðalfundur Neistans verður haldinn í kvöld (26. apríl) klukkan 20:00 að Síðumúla 6, 2. hæð
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar félagsins lagðir fram
3. Lagabreytingar*
4. Reikningar Styrktarsjóðs hjartveikra barna lagðir fram
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning nýs formanns**
7. Kosning stjórnar***
8. Önnur mál
* Lagt er til að d-liður 4. greinar hljóði svo (sjá núverandi lög hér):
Stjórn getur falið framkvæmdastjóra, einstökum félagsmönnum eða nefndum að starfa sjálfstætt að verkefnum en þau standi skil gerða sinna gagnvart stjórninni.
** Núverandi formaður Fríða Björk Arnardóttir gefur ekki kost á sér.
Eitt framboð hefur borist, frá Elínu Eiríksdóttur ritara stjórnar.
*** Kosið verður í 3 sæti í stjórn til tveggja ára. Tveir stjórnarmeðlimir munu ekki gefa kost á sér á ný og það ræst af formannskjörinu hvort kosið verði aukalega í eitt sæti til eins árs. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til setu í stjórn Neistans, vinsamlegast láti vita á neistinn@neistinn.is