Áætlað var að halda páskabingó Neistans, 1. apríl. nk.
Í ljósi samkomubanns munum við fresta því um óákveðinn tíma.
Ný dagsetning verður auglýst við fyrsta tækifæri.
Hugsum vel um hvort annað á þessum óvissutímum.
Félagið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á velferð hjartveikra barna og fullorðinna með hjartagalla. Í dag eru um 500 fjölskyldur í félaginu.
Neistinn miðlar fræðslu hvers kyns sem lýtur að hjartagöllum og meðferð þeirra á heimasíðu félagsins og á samfélagsmiðlum. Félagið heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings og unglingastarfið þykir einkar líflegt. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði hjartveikra barna, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega.