Jólaball Neistans 2011, bíóferð og Unglingahópur
Jólaball Neistans verður haldið laugardaginn, 10. desember n.k. kl. 13:00 – 15:00 í safnaðarheimili Grensáskirkju. Þá syngjum við saman og dönsum við undirleik SÍBS bandsins, gæðum okkur á góðum kökum og meðlæti. Og að sjálfsögðu mætir Sveinki á svæðið og aldrei að vita nema hann laumi á einhverju handa börnunum.
Gefum út nú þriðja árið í röð þetta flotta dagatal fyrir árið 2012. Dagatalið kostar 1500 kr. og rennur óskert til styrktar hjartveikum börnum.
Þeir sem hafa áhuga geta pantað dagatal hér til vinstri og fengið það sent heim eða hafið samband við skrifstofu félagsins í síma 552-5744
eða sendið mail á neistinn@neistinn.is