Dagana 5.-10. sept. verður uppboð á húfum til styrktar Neistanum.
Húfurnar, sem eru 44 eru prjónaðar af Guðrúnu Magnúsdóttir, höfundi bókarinnar Húfuprjón sem er nýkomin út. Þær er allar að finna í bókinni.
Hver einasta króna sem fólk greiðir fyrir húfurnar á uppboðinu fer til Neistans.
Uppboðið er í samstarfi við Meba í Kringlunni. Húfunum er stillt upp í glugga Meba og inni í búðinni er bók þar sem fólk skráir tilboð sitt.