Nú líður að aðalfundi Neistans. Komið hafa fram tillögur að lagabreytingum fyrir Neistann. Þær eru kynntar hér til sögunnar og verður greitt um þær atkvæði á aðalfundinum. Aðalfundur verður boðaður fljótlega.
Lagt er til að lögin verði eins og hér stendur:
- gr.
Nafn félagsins.
Nafn félagsins er Neistinn, félag barna og fullorðinna með hjartagalla.
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Félagið er deild í Hjartaheillum sem eru landssamtök hjartasjúklinga.
- gr.
Markmið félagsins.
- Að fólk með hjartagalla og aðstandendur þeirra miðli hvert öðru af reynslu sinni og veiti hvert öðru þá hjálp og stuðning sem mögulegt er.
- Að stuðla að því, að fólk með hjartagalla og aðstandendur þeirra verði upplýst af fagaðilum um öll þau mál er varða félagsleg og lagaleg réttindi sín.
- Að afla fjár í styrktarsjóð félagsins.
- Að kynna málefni fólks með hjartagalla fyrir almenningi með tilstyrk fjölmiðla og með útgáfustarfsemi.
- Að efla samvinnu við félagasamtök sem vinna að velferðarmálum barna og fólks með hjartagalla.
- Að félagsmönnum verði haldið upplýstum um starfsemi félagsins með reglulegri sendingu fréttabréfs um starfsemina.
- gr.
Félagar.
Rétt til inngöngu í félagið hafa þeir sem áhuga hafa á málefnum fólks með hjartagalla. Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi félagsins. Innheimta skal árgjöld í samræmi við ákvörðun stjórnar.
- gr.
Stjórn félagsins.
- Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Í varastjórn eru tveir menn.
- Stjórnarkjör fer fram ár hvert á aðalfundi félagsins en kjósa skal formann til tveggja ára ásamt tveimur endurskoðendum.
- Stjórn félagsins fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda og ber ábyrgð gerða sinna fyrir aðalfundi.
- Stjórn getur falið nefndum að starfa sjálfstætt að verkefnum en þær standi skil gerða sinna gagnvart stjórninni.
- gr.
Aðalfundur.
- Aðalfundur félagsins skal halda árlega fyrir maílok.
- Til aðalfundar skal boða á tryggilegan hátt með a.m.k. fjórtán daga fyrirvara.
- Stjórn leggur fram skýrslu um starfsemi liðins árs og reikninga félagsins, árituðum af endurskoðanda.
- Gjaldkeri sjóðsstjórnar Styrktarsjóðs hjartveikra barna leggur fram reikninga sjóðsins.
- Reikningsár félagsins er almanaksárið.
- Tillögur um lagabreytingar skulu bornar fram á aðalfundi, enda hafi þeirra verið getið í fundarboði og borist stjórn Neistans skriflega fjórum vikum fyrir aðalfund.
- gr.
Félaginu ber að tilkynna stjórn Hjartaheilla um fulltrúa sína á aðalfundi Hjartaheilla eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund þeirra. Fjöldi fulltrúa skal vera í samræmi við lög Hjartaheilla.
- gr.
Komi fram tillaga um slit félagsins þarf að samþykkja hana á tveimur fundum, þar af einum aðalafundi. Samþykki aukins meirihluta fundarmanna á báðum fundunum þarf til þess að samþykkja tillöguna.
Hætti félagið störfum skal stjórn fela Hjartaheillum umsjón eigna félagsins í þágu fólks með hjartagalla.