Hlauparar, takið eftir:
- Allir sem hlaupa fyrir Nestann fá gefins dry-fit bol, merktan Neistanum í boði 10-11. Hágæða-flík sem gott er að hlaupa í. Nálgast má bolinn á skráningarhátíðinni eða á neistinn@neistinn.is
- Við hvetjum alla til að skrá sig á Fésbókar-atburðinn okkar (Ég hleyp fyrir Neistann).
Þar má fylgjast með hugleiðingum Neista-hlaupara (og -hvetjara) fram að hlaupi. - Neistinn verður með hvatningarlið á hliðarlínunni við JL-húsíð.
Endilega gefið þeim vink í hlaupinu. - Neistinn verður með borð á skráningarhátíðinni í Laugardalshöll.
Kíkið við ef þið eigið leið hjá!
Til allra: Verið óspör á millumerkin #hlaupastyrkur, #eghleypfyrirneistann, #reykjavikmarathon.