Föstudaginn 11. desember runnu 5 kr. af hverjum seldum eldsneytislítra hjá OLÍS til Neistans. Þetta gaf okkur hvorki meira né minna en 1,5 milljónir! Neistinn þakkar öllum sem lögðu hönd á plóg og keyptu eldsneyti þennan dag eða hvöttu aðra til dáða.
Nú hefur Olís ákveðið að láta kné fylgja kviði og ætlar að bjóða vinum Neistans vildarkjör á eldsneyti og styrkja Neistann í leiðinni.
– 8 kr. á þínum stöðvum * 6 kr. afsláttur af hverjum eldsneytislítra hjá ÓB og Olís. * 2 kr. viðbótarafsláttur með því að velja þína ÓB- og Olís-stöð – 15 kr. af hverjum 1.000 kr. – 1 kr. til Neistans Sjá í viðhengi hvernig nálgast má tilboðið |