verður haldinn þriðjudaginn 26. apríl kl. 20:00 að Síðumúla 6. (2. hæð).
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar félagsins lagðir fram
3. Lagabreytingar*
4. Reikningar Styrktarsjóðs hjartveikra barna lagðir fram
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning nýs formanns **
7. Kosning stjórnar***
8. Önnur mál
* Lagt er til að d-liður 4. greinar hljóði svo (sjá núverandi lög hér.):
Stjórn getur falið framkvæmdastjóra, einstökum félagsmönnum eða nefndum að starfa sjálfstætt að verkefnum en þau standi skil gerða sinna gagnvart stjórninni.
** Núverandi formaður Fríða Björk Arnardóttir gefur ekki kost á sér.
Eitt framboð hefur borist, frá Elínu Eiríksdóttur ritara stjórnar. Þeir sem hug hafa á að bjóða sig fram til formanns láti vita ekki seinna en 3 dögum fyrir aðalfund á neistinn@neistinn.is.
*** Kosið verður í 3 sæti í stjórn til tveggja ára. Tveir þeirra sem þau sitja nú gefa ekki kost á sér á ný. Það ræðst af formannskjörinu hvort kosið verði aukalega í eitt sæti til eins árs.
Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til setu í stjórn Neistans, vinsamlegast láti vita á neistinn@neistinn.is.