Skip to main content

Aðalfundur Neistans 2016

By apríl 13, 2016Fréttir

verður haldinn þriðjudaginn 26. apríl kl. 20:00 að Síðumúla 6. (2. hæð).

 

 Dagskrá:

 

1. Skýrsla stjórnar 
2. Reikningar félagsins lagðir fram
3. Lagabreytingar*
4. Reikningar Styrktarsjóðs hjartveikra barna lagðir fram 
5. Ákvörðun félagsgjalds 
6. Kosning nýs formanns **
7. Kosning stjórnar*** 
8. Önnur mál 

 

* Lagt er til að d-liður 4. greinar hljóði svo (sjá núverandi lög hér.):
Stjórn getur falið framkvæmdastjóra, einstökum félagsmönnum eða nefndum að starfa sjálfstætt að verkefnum en þau standi skil gerða sinna gagnvart stjórninni.

 

** Núverandi formaður Fríða Björk Arnardóttir gefur ekki kost á sér. 
Eitt framboð hefur borist, frá Elínu Eiríksdóttur ritara stjórnar. Þeir sem hug hafa á að bjóða sig fram til formanns láti vita ekki seinna en 3 dögum fyrir aðalfund á neistinn@neistinn.is.

 

***  Kosið verður í 3 sæti í stjórn til tveggja ára. Tveir þeirra sem þau sitja nú gefa ekki kost á sér á ný. Það ræðst af formannskjörinu hvort kosið verði aukalega í eitt sæti til eins árs.  
Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til setu í stjórn Neistans, vinsamlegast láti vita á  neistinn@neistinn.is.