Okkur barst á dögunum veglegur styrkur frá Samhentum en í ár eru jólagafir þeirra stuðningur við Samhjálp og Neistann ❤️
Við erum þeim hjartanlega þakklát og óskum starfsfólki þeirra gleðilegra jóla
Félagið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á velferð hjartveikra barna og fullorðinna með hjartagalla. Í dag eru um 500 fjölskyldur í félaginu.
Neistinn miðlar fræðslu hvers kyns sem lýtur að hjartagöllum og meðferð þeirra á heimasíðu félagsins og á samfélagsmiðlum. Félagið heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings og unglingastarfið þykir einkar líflegt. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði hjartveikra barna, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega.