Neistinn í samstarfi við Dale Carnegie bjóða upp á námskeið fyrir ungt fólk. Námskeiðin eru fyrir 10-12 ára, 13-15 ára, 16-20 ára og 21-25 ára. Yfir 3000 unglingar hafa útskrifast af námskeiðunum síðan í mars 2004 með mjög góðum árangri.
Félagsmenn Neistans (og systkini þeirra undir 25 ára) frá 25% afslátt af námskeiðunum.
Í nútímaumhverfi er mikilvægt fyrir ungt fólk að hafa gott sjálfstraust, kunna að setja sér markmið, hafa jákvætt hugarfar, kunna að vinna í hópum, geta tjáð sig af öryggi og tekist á við ábyrgð og það álag sem oft skapast í þeirra lífi.
Námskeiðið byggist upp á sex meginmarkmiðum:
- Efla sjálfstraustið
- Bæta hæfni í mannlegum samskiptum
- Efla tjáningarhæfileika
- Þróa leiðtogahæfileika
- Bæta lífsviðhorf
- Læra markmiðasetningu
Þess má geta að Styrktarfélag Krabbameinssjúkra barna og Einstök börn hafa verið í samstarfi við Dale Carnegie til að styrkja sitt unga fólk undanfarin ár, með mjög góðum árangri.
Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 13.september kl.19 fyrir 10-12 ára og 13-15 ára (æskilegt að foreldrar mæti með) og kl.20 fyrir 16-20 ára og 21-25 ára. Fundurinn er haldinn í Ármúla 11, 3.hæð – allir velkomnir.
Skráning fer fram á kynningarfundi, síma 555-7080 eða á netfanginu anna@dale.is
Allar nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna á www.naestakynslod.is