Sérstaklega áhugaverður fræðslufundur Neistans þriðjudaginn 20. október.
Greining alvarlegra hjartagalla á Íslandi 2000-2014
Hallfríður Kristinsdóttir, læknanemi, hefur rannsakað allt milli himins og jarðar varðandi hjartagalla í íslenskum börnum undir handleiðslu Gylfa Óskarssonar barnahjartalæknis.
Þau kynna okkur þessar rannsóknir á næsta fræðslufundi Neistans þriðjudaginn 20.10 kl. 20 í Síðumúla 6.
Hallfríður mun fjalla um hvenær og hvernig alvarlegir meðfæddir hjartagallar greinast hjá börnum. Einnig hvenær aðgerðir og inngrip eru framkvæmd ásamt hvernig börnum með alvarlega hjartagalla á Íslandi hefur vegnað á sl. 15 árum. Velt verður upp spurningunni hvort gera megi betur í að greina alvarlega meðfædda hjartagalla fyrr, og hvort sein greining slíkra galla sé vandamál á Íslandi.
Í kjölfarið munu þau Gylfi sitja fyrir svörum og spjalla nánar um efnið ef áhugi er fyrir hendi.
Foreldrar, aðstandendur, fjölmennum nú og fræðumst um mál sem snertir okkur öll.
– – – – – – – – – –
Þá viljum við benda á opinn fræðslufund hjá Íslenskri erfðagreiningu laugardaginn 17. október.
Opinn fræðslufundur í samstarfi við Hjartaheill, um hjartasjúkdóma og erfðir verður haldinn laugardaginn 17. október kl. 14:00 til 15:30 í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE), Sturlugötu 8.
Erindi flytja:
Davíð O. Arnar, hjartalæknir, Landspítala
Guðmundur Þorgeirsson, hjartalæknir, Landspítala
Hilma Hólm, hjartalæknir, Landspítala og ÍE
Kári Stefánsson, læknir og erfðafræðingur, ÍE