Þessar duglegu vinkonur, Elísa og Dagný, komu færandi hendi á skrifstofu Neistans á dögunum. Þær færðu félaginu að gjöf afrakstur tombólu sem þau héldu í Hafnarfirði.
Hjartans þakkir fyrir stelpur !
Félagið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á velferð hjartveikra barna og fullorðinna með hjartagalla. Í dag eru um 500 fjölskyldur í félaginu.
Neistinn miðlar fræðslu hvers kyns sem lýtur að hjartagöllum og meðferð þeirra á heimasíðu félagsins og á samfélagsmiðlum. Félagið heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings og unglingastarfið þykir einkar líflegt. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði hjartveikra barna, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega.