Skip to main content

Reykjavíkurmaraþon

Nú styttist heldur betur í Reykjavíkurmaraþonið sem mun fara fram þann 19. ágúst n.k.

Skráningarhátíðin verðu í fullu fjöri í  Laugardalshöllinni, og við hvetjum alla til að koma við hjá okkur þegar þeir sækja númerin sín á fimmtudaginn eða á föstudeginum.

Fyrir þá sem ekki eru skráðir í Reykjavíkurmaraþonið er aðgönguverð aðeins kr. 850. Keyptur miði gildir báða sýningardaganna ! Frítt er inn fyrir 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.

 

Reykjavíkurmaraþonið hefur verið ein af okkar stærstu fjáröflunarleiðum undanfarin ár, og skiptir félagið mjög miklu máli en um 70 börn á ári greinast á Íslandi  með hjartagalla. Við erum endalaust þakklát öllum hlaupurunum okkar og öllum sem hafa hvatt þá áfram og heitið á, og með  því styrkt við starf félagsins ❤️

 

Til þess að sýna þakklæti okkar gefum við öllum hlaupurum Neistans dry-fit bolimerkta félaginu, á meðan birgðir endast.

 

Fjöldinn allur af flottu fólki ætlar að hlaupa fyrir Neistann í ár og bætist sífellt á listann! Endilega kíkið á þessa flottu hlaupara og heitið á þá ❤️

Við viljum hvetja alla hlaupara til að minna á sig, og nota “hashtöggin” #Neistinn #ÉghleypfyrirNeistann, #skiptirekkimáliámeðanþúklárar og #Reykjavikurmarathon. Eins erum við með hlaupahóp á facebook sem við hvetjum alla okkar hlaupara til að vera með okkur í 🥰

Og eins og áður verður Neistinn með skemmtilega hvatningarstöð  á hlaupaleiðinni við JL húsið sem við að sjálfsögðu hvetjum alla til að mæta á og hvetja hlauparana okkar!

 

ÁFRAM NEISTINN!