Reykjavíkurmaraþonið í ár fer fram laugardaginn 24. ágúst næstkomandi.
Við hvetjum alla til að hlaupa, ganga eða bara að skríða í liði Neistans og skora á vini og vandamenn að heita á sig til að styrkja okkur öll.
- Þú getur valið um að skrá þig (eða aðra) í eftirfarandi vegalengdir:
- Maraþon (42,2 km) – fyrir þau sem verða 18 ára á árinu
- Hálfmaraþon (21,1 km) – fyrir þau sem verða 15 ára á árinu og eldri
- 10 km hlaup – fyrir þau sem verða 12 ára á árinu og eldri
- Skemmtiskokk – fyrir fólk á öllum aldri
Þeir sem taka ekki þátt í Reykjavíkurmaraþoninu geta heitið á hlauparana okkar á hlaupastyrk.is
Áfram Neistinn !