Í ár fagnar Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, 20 ára afmælisári sínu og af því tilefni blæs félagið til sérstaklega athyglisverðra styrktartónleika á Café Rosenberg, fimmtudaginn 7. maí , kl. 20:30.
Þeir sem fram koma eru listamennirnir
KK, Skúli mennski, Bjartmar Guðlaugsson Teitur Magnússon og Jóhann Helgason
Kynnir á tónleikunum er hin geðþekka fjölmiðla- og hjólakona
Kolbrún Björnsdóttir
Öll gefa þau vinnu sína og rennur ágóðinn í Styrktarsjóð Neistans.
Sjóðurinn styrkir fjölskyldur hjartveikra barna og ungmenna.
Aðgangseyrir verður 3.000 kr.