Unglingahópur Neistans hittist aftur síðastliðinn miðvikudag og áttu þau dúndur góðan tíma saman.
Farið var í Reykjavík Escape þar sem þau fóru í 2 herbergi, skipt var í tvo hópa þar sem annar fór í Prison Break og hin fór í Bank Heist. Allir skemmtu sér konunglega þrátt fyrir smá keppni á milli herbergja ?
Eftir fjörið í Reykjavík Escape var haldið á Hamborgarafabrikkuna þar sem fengið var sér að borða og spjallað saman.
Mætingin var mjög góð og eru allir spenntir fyrir næsta hitting ?
Erum ótrúlega ótrúlega stolt af þessum flotta hóp og hlökkum til að sjá hann stækka og dafna
Unglingastarf Neistans er styrkt af heilbrigðisráðuneytinu.