GUCHarar, hjartaforeldrar, aðstandendur … Árshátíðin vofir yfir!
Hvenær: Föstudaginn 2. maí, 2014.
Klukkan: 19:30-Fordrykkur, 20:00-Borðhald
Hvar: Rúgbrauðsgerðin (Naminamm!) Borgartúni 6
Hvað: Frábær matur, skemmtilegt fólk
Tónlistaratriði: Jú takk
Uppistand: ARI ELDJÁRN (say no more)
Veislustjóri: GÍSLI EINARSSON (Landinn sjálfur)
Dans: Auðvitað!
– Hinn síkáti ÖRLYGUR SMÁRI tryggir stuðið.
Prís: 5.900 (greiðist helst fyrir 30. apríl*)
Greiðsla: Millifæra á
kt. 490695-2309
reikn. 345-26-141
staðfesting á: neistinn@neistinn.is
*Þeir sem vilja komast yfir mánaðamótin eða nota greiðslukort hringi í Guðrúnu í síma 899 1823. Það reddast!
Miðarnir afhendast við innganginn.
Páska-BINGÓ !!!!!!
Hið árlega BINGÓ Neistans brestur á þriðjudaginn 8. apríl
kl. 17 – 19.
Spilað verður í Seljakirkju. Bingóið er fyrir alla félagsmenn, unga og aldna og að vanda er búist við dúndur mætingu og glymrandi stemningu.
Fullt, fullt af flottum vinningum!
SPJALDIÐ KOSTAR 250,- kr.
Svo gæðum við okkur á dýrinds pizzum að bingói loknu.
Sem aðilar að Umhyggju getum við fengið að dvelja í frábærum sumarhúsum félagsins í Vaðlaborgum og Brekkuskógi.
Umsóknarfrestur fyrir sumarið 2014 rennur út 24. mars nk.
- Eins og undanfarin ár kostar vikan 25.000 kr.
- Húsin eru leigð frá föstudegi til föstudags.
Komutími í húsin eru kl. 16.00 og brottfarartími er kl. 12.00. - Það eru rúm fyrir 8 manns í Brekkuskógi en 6 manns í Vaðlaborgum.
Þar er hægt að fá dýnur lánaðar. - Með húsunum er heitur pottur, uppþvottavél og þvottavél.
- Einnig eru sjúkrarúm og lyftarar í báðum húsunum.
Sjá nánar hér (myndir o.fl.). Einnig á www.umhyggja.is.
Til að sækja um sumarhús:
Sendið tölvupóst á netfangið: umhyggja@umhyggja.is
Eða hringið í síma 552-4242
Dagatal Neistans 2014 er komið út!
Að vanda prýða dagatalið flottar myndir af hjartabörnum á öllum aldri.
Dagatalið kostar 2.000 kr. og rennur ágóðinn óskertur til styrktar hjartveikum börnum.
Þeir sem hafa áhuga á að kaupa (eða selja) dagatöl geta pantað það með pósti á neistinn@neistinn.is
eða í síma 552-5744.
Furðufuglar
Laugardaginn 21. desember ætlar Laugarásbíó að bjóða Neistafólki – og þá erum við að meina hjartakrökkum, mömmum og pöbbum, öfum og ömmum, frænkum og frændum og …
– á fyndnustu fuglamynd allra tíma, FURÐUFUGLA.
Sýningin hefst kl. 12:00 (hádegi sumsé … ekki á miðnætti).
Varúð! Menn verða að passa sig að springa ekki úr hlátri!
Munið fésbókarsíðuna okkar: https://www.facebook.com/Neistinn.StyrktarfelagHjartveikraBarna
Foreldrum og aðstandendum langveikra og fatlaðra barna stendur til boða að versla vörur í ABC leikföngum á lægra verði fram að jólum. ABC Leikföng er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í þroskaleikföngum. ABC leikföng varð til eftir að foreldrar fundu ekki viðeigandi þroskaleikföng fyrir barn sitt og fannst vanta vörur til að örva þroska barna.
Meðal þeirra vara sem ABC leikföng bjóða upp á eru málörvunarvörur frá Super Duper sem margir foreldrar þekkja og flestir talmeinafræðingar nota. Einnig er mikið af vörum frá Learning Resources sem hægt er að nota til þess að þjálfa og kenna m.a. liti, form, tölur og orðaforða. Nýjasta viðbótin eru síðan Stafakubbar með séríslensku stöfunum sem hægt er að tengja saman til að móta orð og jafnvel setningar. Á vefsíðu fyrirtækisins www.abcleikfong.is má sjá yfirlit yfir vörur sem eru í boði. Einnig er póstsending í boði en þá er best að senda tölvupóst á
Opið verður fyrir félagsmenn á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum milli klukkan 20 og 22 fram að jólum. Almennur afgreiðslutími er á virkum dögum milli klukkan 12 og 18 en á laugardögum er opið klukkan 12 til 16.
Kristín Hlynsdóttir stofnandi ABC leikfanga þurfti að bíða lengi eftir þroskagreiningu á barni sínu og biðlistar eftir sérfræðiaðstoð voru langir. Kristín reyndi ásamt starfsfólki leikskóla barnsins að örva það með þeim hjálpartækjum sem þau gátu fengið. Þá uppgötvaði Kristín hversu mikil þörf er á sérkennslugögnum og leikföngum fyrir börn með sérþarfir. ABC Leikföng voru stofnuð sumarið 2010. Í byrjun var fyrirtækið í Súðarvog 7 á 2. hæð í 20 fm herbergi en er nú í nóvember að flytja í 120 fm verslunapláss í sama húsi.
ABC leikföng, Súðarvogur 7, sími 841 6600
Nú styttist í það – munum að skrá okkur!
Hið árlega spilakvöld Neistans brestur á föstudagskvöldið 8. nóvember kl. 20:00 í húsnæði Neistans að Síðumúla 6, 1.hæð (gengið inn á vinstri hlið) .
Spiluð verður félagsvist (sem sumur kalla framsóknarvist).
Flestir kunna þetta fína spil – en þeir sem muna ekki reglurnar þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur. Smellið bara hér.
En maður þarf náttúrulega ekkert að kunna – aðalatriðið er að vera með.
Þeir sem mættu í fyrra vita að hverju þeir ganga enda var alveg hrikalega skemmtilegt, en í boði verður…
- skemmtilegur félagsskapur
- veglegir vinningar
- snarl
(komum sjálf með dreitil til að væta kverkarnar því nóg verður spjallað – og jafnvel spilað)
Hjartaforeldrar, aðstandendur, mætum öll!
Tilkynna þarf þátttöku í síðasta lagi þriðjudaginn 5. nóvember á neistinn@neistinn.is.
Nú er eins gott að draga fram almanakið og setja hring um nokkra daga.
Það stefnir í skemmtilegan vetur hjá okkur.
Vídeókvöld (Unglingahópurinn)
Unglingahópurinn ætlar að hittast fljótlega heima hjá Guðrúnu og Jóa (höfum við heyrt) og hangsa og chatta yfir vídeói eða eitthvað. Nánar seinna.
Spilakvöld (foreldrar)
Spilakvöld fyrir foreldra hjartabarna verður haldið föstudaginn 8. nóvember. Menn ráða því hvað þeir taka spilið alvarlega en þarna verða veglegir vinningar í boði. Og fullt af þeim.
Á spilakvöldin kippa menn gjarnan með sér einhverri hressingu til að liðka um spilafingurna (og málpípuna).
Bíó – öll fjölskyldan
Eins og vanalega verður okkur boðið í bíó á einhverja frábæra fjölskyldumynd þegar nær dregur jólum. Öll smáatriðin verða hér á vefnum þegar nær dregur.
Jólaball
Að vanda verður jólaballið á sínum stað. Jólasveinninn kemur með pokann góða. Dansað verður í kringum jólatréð og allt það. Kaffi og krakkahressingar og bara mikil gleði. Jólaböllin hafa verið rosalega vel sótt enda stemningin bara frábær.
Takið frá sunnudaginn 8. desember, kl. 14 – 16.
Munið Fésbókarsíðuna okkar:
https://www.facebook.com/neistinn.styrktarfelaghjartveikrabarna
Neistinn og Hjartaheill hafa hrundið af stað átakinu Styrkjum hjartaþræðina, til söfnunar fyrir nýju hjartaþræðingartæki á hjartadeild Landsspítalans. Elsta hjartaþræðingartækið á Landspítalanum er nú orðið 16 ára gamalt og aðeins tímaspursmál hvenær notkun þess verður alfarið hætt. Í dag eru 260 manns á biðlista eftir hjartaþræðingu sem er algerlega óviðunandi ástand.
Með nýju tæki er hægt að stytta biðlistana og auka lífsgæði fjölda fólks sem nú býr við mikla óvissu. 50 til 70 börn fæðast árlega með hjartagalla og rúmlega 700 Íslendingar látast árlega af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Hjartadeildin þarf nauðsynlega að eignast nýtt hjartaþræðingartæki en þar eru framkvæmdar um 200 aðgerðir í hverjum mánuði.
Biðlað er til landsmanna um að leggja fé til söfnunarinnar, en það er hægt með þrennum hætti, greiða valgreiðslu í heimabanka, hringja í styrktarsíma, eða leggja beint inn á reikning söfnunarinnar ef um hærri fjárhæðir er að ræða.
LEIÐ 1:
Valgreiðslur munu birtast í heimabönkum elsta íbúa hvers heimilsfangs á næstu dögum.
LEIÐ 2
Styrktarsímanúmer
907-1801 – 1000 kr. framlag
907-1803 – 3000 kr. framlag
907-1805 – 5000 kr. framlag
LEIÐ 3
Leggja inn á reikning. Hentar fyrirtækjum og öðrum sem vilja láta meira af hendi rakna.
0513-26-1600
kt: 511083-0369