Skip to main content
Category

Uncategorized

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 18. september

By Fréttir, Uncategorized

Hlaupum til góðsReykjavíkurmaraþon Íslandsbanka mun fara fram laugardaginn 18. september.

Hlaupið er tilvalin fjölskylduskemmtun þar sem frábær stemming myndast þegar styrktaraðilar Neistans leggja sitt af mörkum með því að hlaupa eða hittast á hliðarlínunni til þess að hvetja hlauparana áfram.

Þátttakendur geta valið á milli fjögurra mismunandi vegalengda sem henta fyrir alla aldurshópa og fjölbreytt getustig.

Í kringum 70 börn greinast árlega með hjartagalla og er maraþonið ein helsta fjáröflunarleið Neistans.

Við erum endalaust þakklát öllum þeim sem hlaupa fyrir félagið, mæta til að hvetja hlauparana áfram og öllum þá sem hafa styrkt við starf félagsins með því að heita á hlauparana.

 

Skráning í Reykjavíkurmaraþonið           Áheitasöfnun

 

Allir sem hlaupa fyrir Neistann fá gefins dri-fit bol sem er merktur félaginu til að hlaupa í. Hlauparar eru hvattir til að panta bol með því að senda tölvupóst á neistinn@neistinn.is og tilgreina bolastærð.

Hlökkum mikið til að hvetja ykkur áfram í hlaupinu.

KVAN námskeið fyrir 7-9 ára

By Fréttir, Uncategorized

Umhyggja í samstarfi við KVAN býður upp á vandað námskeið fyrir systkini langveikra barna. Þátttakendur eru efldir á uppbyggilegan og skemmtilegan hátt til að takast á við þær félagslegu aðstæður sem upp koma í lífi þeirra.

Hvenær:

Námskeiðið hefst 19. ágúst og mun fara fram á fimmtudögum frá klukkan 16:30 til 18:30 (8. skipti). Börnin hittast í húsakynnum KVAN, Háabraut 1a, 200 Kópavogi (Safnaðarheimili Kópavogskirkju, gengið er inn að neðanverðu).

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað 7-9 ára börnum fjölskyldna sem eru í aðildarfélögum Umhyggju. Við skráningu er mikilvægt að félagsmenn taki fram að þeir séu í Neistanum (sett í reitinn upplýsingar).

Skráningargjaldið er aðeins 7.000 krónur þar sem það er niðurgreitt (hefðbundið verð er 88.000 kr)

 

Skráning á námskeið

 

 

Styrkjum krakkana okkar

By Fréttir, Uncategorized

Neistinn í samstarfi við KVAN ætlar að bjóða upp á góða kvöldstund fyrir 10-12 ára krakka (5.-7. bekkur) þann 16. maí. Þar förum við í leiki, kynnumst, spjöllum saman og höfum gaman.

Börnin eru velkomin klukkan 17:00 og foreldrar geta sótt þau aftur klukkan 18:30, fengið sér pizzu og hitt alla krakkana og hina foreldrana. Anna Steinsen þjálfari hjá KVAN og stjórnarmeðlimur Neistans, tekur vel á móti börnunum í húsakynnum KVAN, Hábraut 1a, 200 Kópavogi (safnaðarheimili Kópavogskirkju, gengið inn að neðanverðu).

Skráning fer fram í gegnum netfangið neistinn@neistinn.is

Hlökkum til að sjá ykkur.

By Uncategorized

Aðalfundur Neistans verður haldinn miðvikudaginn 17. maí kl. 20:00 í Síðumúla 6. (2. hæð).

Dagskrá:

1. Kosning fundarstjóra og ritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar félagsins lagðir fram
4. Reikningar Styrktarsjóðs hjartveikra barna lagðir fram
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning skoðunarmanns reikninga
7. Kosning formanns*
8. Kosning stjórnar**

9.Önnur mál

 

* Núverandi formaður Elín Eiríksdóttir gefur ekki kost á sér.  Eitt framboð hefur borist, frá  Guðrúnu Bergmann, fyrrum formanni Neistans. Þeir sem hug hafa á að bjóða sig fram til formanns láti vita ekki seinna en 5 dögum fyrir aðalfund á neistinn@neistinn.is.

** Kosið verður í 3 sæti í stjórn til tveggja ára og 1 sæti til eins árs. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til setu í stjórn Neistans, vinsamlegast láti vita ekki seinna en 5 dögum fyrir aðalfund á  neistinn@neistinn.is.