Skip to main content

Hjartamömmuhittingur 25.maí

By Fréttir
Loksins eftir alltof langa pásu ætlum við að hafa hitting fyrir okkur mömmurnar ❤️
Við ætlum að hittast í nýja húsnæði Neistans að Háaleitisbraut 13 (sama hús og æfingastöðin) á 4 hæð.
Við viljum hvetja ykkur sem flestar til að mæta og kynnast fleiri mæðrum í svipuðum sporum ?
Hlökkum til að sjá sem flestar mömmur ❤️
Nánari upplýsingar er hægt að sjá hér.
Neistinn logo

Fréttir frá Aðalfundi

By Fréttir

Aðalfundur Neistans fór fram  þann 4. maí síðastliðinn.

Kosið var í  3. sæti stjórnar.

Guðrún Bergmann Franzdóttir gaf ekki kost á sér áfram en Neistinn þakkar henni kærlega fyrir störf henni í þágu félagsins.

Í stjórn Neistans sitja nú:

  • Jónína Sigríður Grímsdóttir – formaður
  • Guðrún Kristín Jóhannesdóttir – varaformaður
  • Katrín Björgvinsdóttir – gjaldkeri
  • Þórhildur Rán Torfadóttir- ritari
  • Anna Steinsen- meðstjórnandi
  • Elín Eiríksdóttir – meðstjórnandi
  • Hrafnhildur Sigurðardóttir – meðstjórnandi

Neistinn er heppinn að fá slíkar kraftmiklar kjarnakonur til liðs við sig og við hlökkum mikið til komandi tíma með þessari öflugu stjórn.

 

Urð x Neistinn

By Fréttir
URÐ kynnir nýja sápu sem er mótuð eins og hjarta til styrktar Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna á Hönnunarmars í verslun Epal.
Markmiðið með sölu á sápunni er að fræða og vekja fólk til umhugsunar og um leið styrkja starfsemi Neistans.
Neistinn miðlar hvers kyns fræðslu sem lýtur að hjartagöllum og meðferð þeirra. Félagið heldur úti öflugri dagskrá, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings, ásamt því að styrkja hjartafjölskyldur fjárhagslega.
Opnunartímar á Hönnunarmars í Epal eru eftirfarandi,
Þriðjudagur: Opnunarhóf frá 17-19.
Miðvikudagur: 10-18
Fimtudagur: 10-18
Föstudagur: 10-18
Laugardagur: 10-16

Páskabingó Hjalla í Kjós

By Fréttir

Á hverju ári halda eðalhjónin Hermann og Birna í Hjalla í Kjós páskabingó til styrktar góðu félagi. Í ár völdu þau Neistann og erum við þeim ótrúlega þakklát fyrir þeirra góðmennsku ❤️

Fríða Björk framkvæmdastjóri Neistans fór í gær í kjósina og hitti þessi yndislegu hjón og tók við styrk frá þeim upp á 230 þúsund krónur.

Við þökkum kærlega fyrir rausnarlegt framtak og mikla velvild ❤️❤️

 

 

Páskafrí

By Fréttir

Skrifstofa Neistans lokar vegna páskafrís eftir daginn í dag og við opnum aftur fimmtudaginn 13.apríl

Hægt er að senda okkur tölvupóst á neistinn@neistinn.is eða hafa samband í gegnum samfélagsmiðla ef erindið er brýnt ❤️

Neistinn logo

Aðalfundur Neistans 2023

By Fréttir

Aðalfundur Neistans verður haldinn fimmtudaginn 4. maí n.k. klukkan 20:00.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði félagsins Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

 

Dagskrá:

  1. Kosning fundarstjóra og ritara
  2.  Skýrsla stjórnar
  3. Reikningar félagsins lagðir fram
  4. Reikningar Styrktarsjóðs hjartveikra barna lagðir fram
  5. Ákvörðun félagsgjalds
  6. Kosning skoðunarmanns reikninga
  7. Lagabreytingar
  8. Kosning stjórnar*

 

*Kosið verður í 3 sæti í stjórn til tveggja ára.

 

Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram eru beiðnir um að láta vita eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund með því að senda tölvupóst á netfangið neistinn@neistinn.is.

 

Tillögur að lagabreytingu ( lög neistans )skulu berast skrifstofu Neistans eigi síðar en 4 vikum fyrir aðalfund ( 6.apríl í síðasta lagi).

 

Við vekjum athygli á því að aðeins þeir sem eru félagsmenn og hafa greitt félagsgjöldin a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund hafa atkvæðisrétt.

Góðgerðarpizza safnaði 7,3 milljónum fyrir Neistann

By Fréttir

Góðgerðarp­izza Dom­ino‘s þetta árið safnaði 7,3 millj­ón­um fyr­ir Neist­ann, styrkt­ar­fé­lag hjartveikra barna.

Þetta er 10. árið í röð sem að góðgerðarp­izza er á boðstól­um hjá Dom­ino‘s en öll sala góðgerðarp­izzunn­ar hef­ur farið óskipt til góðgerðasam­taka ár hvert.

Hrefna Sætr­an hef­ur unnið með Dom­ino‘s að góðgerðarp­izzunni frá upp­hafi og gefið alla sína vinnu tengda verk­efn­inu og í ár var eng­in breyt­ing þar á, og MS og Ali styrktu verk­efnið með hrá­efn­um líkt og árin á und­an.

Við erum ótrú­lega þakk­lát fyr­ir þetta frá­bæra fram­tak Dom­ino‘s og að hafa valið okk­ur í ár og Hrefnu fyr­ir að út­búa þessa dá­sam­lega góðgerðarp­izzu. Styrk­ur­inn mun nýt­ast í að út­búa nýtt fræðslu- og upp­lýs­inga­efni fyr­ir aðstand­end­ur hjart­barna og hjarta­börn­in sjálf. Hjart­ans þakk­ir til allra viðskipta­vina Dom­ino‘s fyr­ir að kaupa góðgerðarp­izzuna í ár og hjálpa okk­ur þar með að stuðla að betri þjón­ustu fyr­ir hjartveik börn og þeirra fjöl­skyld­ur.

Hópefli

By Fréttir

Þessi frábæri hópur unglinga sem eru á leiðinni í norrænar sumarbúðir fyrir hjartveik börn í Finnlandi í sumar hittust síðastliðinn þriðjudag.

Þau áttu saman frábæra stund saman í leikjasalnum í Smárabíó og borðuðu síðan saman pizzu.

Tilgangurinn með þessum hittingi var að þjappa saman hópnum svo þau myndu kynnast hvort öðru áður en þau myndu eyða saman viku í Finnlandi.  Þau áttu saman ótrúlega skemmtilega stund  þar sem þau náðu að kynnast hvort og spjalla um sumarbúðirnar.

Mikil spenna er fyrir sumarbúðunum í ár og einstakt tækifæri fyrir hjartveika unglinga að fara og kynnast öðrum unglingum sem eru að upplifa það sama og þau ❤️

Góðgerðarpizzan 2023

By Fréttir
Domino’s kynnir með stolti Góðgerðarpizzuna 2023 í samstarfi við Hrefnu Sætran, MS & Ali ?❤️
Góðgerðarpizzan í ár er einstök en á henni er Hvítlaukssósa, Pepperoni, Beikon, Spínat, Græn Epli, Hunang og Truffluostur ??
?ÖLL sala? Góðgerðarpizzunnar rennur beint til Neistinn styrktarfélag hjartveikra barna en
Neistinn er stuðningsfélag hjartveikra barna ❤️  í félaginu eru rúmlega 500 fjölskyldur og
er mikil þörf á fræðsluefni fyrir fjölskyldu og aðstandendur.
Láttu gott af þér leiða og njóttu á meðan með því að panta Góðgerðarpizzuna og styrkja Neistann í leiðinni ?❤️
Pantaðu hér ? https://www.dominos.is/