Á allra vörum kvöldið verður í Krinlgunni fimmtudagskvöldið 18. ágúst kl. 18:00 – 21:00. Frábært kvöld sem enginn má missa af. Á allra vörum glossinn og bolir frá Aunts Design verða til sölu. Neistinn kynnir starfsemi sína og aðrar frábærar kynningar og tilboð, s,s. Dior kynning og meðferðir til betra útlits. Drykkir í boði Ölgerðarinnar. Kynnir kvöldsins verður hin yndislega Sigga Lund. Helgi Björns, Bogomil Font, Helga Mölller, Sigga Kling og fleiri mæta á svæðið.
Góðgerðarfélagið „Á allra vörum“ leggur nú af stað í sína fjórðu landssöfnun. Um er að ræða kynningar- og fjáröflunarátak þar sem þjóðin sameinast og lætur gott af sér leiða. Félagið velur árlega eitt viðráðanlegt verkefni og hefur m.a. safnað fyrir SKB, Ljósið og Krabbameinsfélag Íslands.
Í ár beinir „Á allra vörum“ kastljósinu að Neistanum og málefnum hjartveikra barna, en um 70 börn greinast með hjartagalla árlega. Sérstakt hjartatæki fyrir börn á Barnaspítala Hringsins er nú komið til ára sinna og er veruleg vöntun á endurnýjun. Mikið álag er á tækið þar sem það er eitt sinnar tegundar á landinu og notað oft á dag til að greina tilfelli í fóstrum svo og nývoðungum. Það er alveg ljóst að með endurnýjuðu tæki má bæði spara peninga og bjarga mannslífum.
„Það er með gleði og bjartsýni í hjarta sem við leggjum af stað í þessa fjórðu ferð okkar því málefnið er bæði þarft og viðráðanlegt. Tilhugsunin um að svona tæki bjargi litlum mannslífum og hjörtum barnanna okkar, gerir það einnig auðveldara og vonumst við stöllur til þess að þjóðin taki okkur jafn vel og undanfarin ár“
– segir Gróa Ásgeirsdóttir ein forsvarskvenna félagsins.
Átakið hefst 12. ágúst og þá með sölu á hinum landsþekktu „Á allra vörum“ varaglossum frá Dior. Tveir nýir litir verða í boði og fást þeir hjá viðurkenndum Dior snyrtivöruverslunum um land allt. Einnig verður hægt að panta gloss hjá Neistanum, Síðumúla 6.
Sjónvarpsþáttur og konukvöld í Kringlunni
„Á allra vörum“ konukvöld er fyrirhugað í Kringlunni fimmtudaginn 18. ágúst þar sem kennir ýmissa grasa, m.a. frábær tilboð í verslunum, ýmsar kynningar auk þess sem landsþekktir skemmtikraftar láta sjá sig.
Átakinu lýkur með landssöfnun 26. ágúst í beinni útsendingu á Skjá Einum. Maríanna Friðjónsdóttir stýrir henni ásamt fjölda sjálfboðaliða úr íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum, sem tekið hafa saman höndum umliðin ár til að setja ómetanlegan og veglegan lokahnykk á átakið.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður haldið þann 20.ágúst nk. Eins og fyrri ár verður hægt að hlaupa fyrir Neistann og heita á viðkomandi hlaupara. Smelltu hér til að fara inná hlaupastyrkur.is og heita á hlaupara.
Hefur ágóðin af maraþoninu verið aðalstyrktarleið okkar til að fjármagna Unglingahóp Neistans styrktarfélags hjartveikra barna en tækninni að þakka þá eigum við orðið stóran unglingahóp sem þarf að halda utan um.
Sumarhátíð 2011
Sumarhátíð Neistans 2011 verður haldin fimmtudaginn 23. júní n.k. frá kl. 17:00 til 20:00 í skemmtigarðinum Grafarvogi. Þar gæðum við okkur á grilluðum pylsum með tilheyrandi í frábærri aðstöðu garðsins.
Neistinn ætlar að bjóða fjölskyldum í ævintýra minigolf sem er í dag ein vinsælasta afþreying garðsins.Þeir sem ætla að þiggja boð Neistans og fara í golfið þurfa að skrá sig fyrir 21. júní n.k. í síma 899 1823 eða senda tölvupóst á netfangið neistinn@neistinn.is svo hægt sé að raða upp í brautirnar.
Staðsetning
Frá Gullinbrú í Grafarvogi er ekið um 1 km leið að garðinum og sést stórt sjóræningjaskip á vinstri hönd þegar þið nálgist garðinn.
Hlökkum til að sjá ykkur öll í sumarskapi.
Stjórn Neistans
Aðalfundur Neistans var haldinn í gærkveldi, það var ágæt mæting og fundarhöld gengur vel.
Farið var yfir skýrslu stjórnar og reikninga og voru þeir samþykktir einróma.
Úr stjórn gengur Berglind Sigurðardóttir, Gróa Jónsdóttir og Hallgrímur Hafsteinsson og færum við þeim hjartans þakkir fyrir óeigingjarn starf í þágu Neistans.
Ný stjórn Neistans skipa því nú Guðrún Bergmann Franzdóttir formaður, Andri Júlíusson, Guðný Sigurðardóttir, Fríða Arnardóttir, Karl Roth, Olga Hermannsdóttir og Ellý Ósk Erlingsdóttir.
Bjóðum við nýjum stjórnarmönnum hjartanlegar velkomna.
Skoðunar menn reikninga voru einnig kostnir og eru það Martha Richart og S.Andrea Ásgeirsdóttir.
Bjóðum við þeim öllum hjartanlega velkomin og hlökkum til samstarfsins með þeim.
Hjartans þakkir
fyrir að slást í hóp mánaðarlegra styrktaraðila Neistans,
styrktarfélags hjartveikra barna.
Mánaðarlegur stuðningur þinn og annarra velviljaðra landsmanna gerir okkur meðal annars kleift að styrkja fjölskyldur fjárhagslega sem þurfa að fara með barn sitt í hjartaaðgerð.
Við munum fljótlega hafa samband og ræða helstu atriði varðand fyrirkomulag stuðningsins.
Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að taka upp símann og
hringja í 899-1823 eða senda okkur tölvupóst á neistinn@neistinn.is.
Fræðsla fyrir foreldra hjartveikra barna á Norðurlandi
Fimmtudaginn 19. maí n.k. kl. 16:30 ætlar dr. Sigríður Halldórsdóttir í Háskólanum á Akureyri
að fræða foreldra og aðra aðstandendur hjartveikra barna um sál- og taugaónæmisfræði.
Fræðslan fer fram í Zontahúsinu á Akureyri, Aðalstræti 54.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta og fræðast um hvernig hægt er að styrkja ónæmiskerfið og hitta aðra foreldra og félagsmenn í Neistanum.
Sunnudaginn 15. maí nk. frá kl.ca. 12-16 er öllum félagsmönnum Neistans boðið frítt í Fjölskyldu & húsdýragarðinn með fjölskylduna sína.
Sumarhátíðin okkar verður í júlí með svipuðu sniði og síðustu ár en við sendum boð á hana er nær dregur.
Vonumst við til að sjá sem flesta á í Húsdýragarðinum.
Kær sumarkveðja frá stjórn Neistans.